miðvikudagur, maí 14, 2008 Æm kommíng hóm!!! Já nú er dvöl minni hér í Kanada lokið. Ég sit út á flugvelli og bíð eftir að fara um borð í vél til London. Slapp svona líka leikandi létt í gegnum tékk innið með allan farangurinn minn án þess að borga. Held báðar töskurnar hafi verið yfir 23kg en gamla trikkið að láta afturendann á töskunni liggja á járninu virkaði og vigtuðu þær báðar bara um 20 kg :o) Önnur taskan léttist um 3kg við það eitt að láta hjólin upp á járnið. Ég er engan vegin búin að fatta að þetta sé búið. Það er svo stutt síðan ég kom, og enn styttra síðan jólin voru og ég átti enn heila önn eftir. Og tala nú ekki um hvað það er stutt síðan ég var í prófum og ég átti meir en mánuð eftir í Kanada. Hvert fór allur þessi tími sem ég átti eftir?? Hef ég legið í roti eða hvað?? Í London mun ég eyða e-m 2 tímum áður en ég fer upp í aðra vél til Köben. Áætlaður komutími til Köben er á fimmtudag klukkan 16.55 að staðartíma, allir velkomnir á völlinn að taka á móti mér :o) Á laugardaginn er merkisdagur og að því tilefni hef ég hóað saman nokkra vini sem ætla að hafa ofan af fyrir mér og kannski fá sér eins og einn, tvo öl með mér. Ég verð svo á tjillinu í Köben fram á þriðjudag og lendi svo á Íslandi um 22 leitið, og aftur eru allir velkomnir á völlinn að taka á móti mér! Stefni á að vera í borginni fram á helgi og reyna að finna e-ð sniðugt út úr þessu blessaða námi sem ég er í. Eitt af mörgum hugmyndum núna er að taka mannfræðina í fjarnámi og vera annaðhvort á Ísafirði eða Akureyri í vetur. En það fer allt eftir hvernig kúrsarnir raðast niður og hversu mikið ég á eftir að taka. Eitt er allavega víst, að mig langar engan vegin að vera í Rvk næsta vetur og ég held bara að fjárhagurinn einfaldlega leyfi það ekki. En við sjáum til hvað kemur út úr heimsókn minni til námsráðgjafans. Kannski ég fari bara að læra eitthvað allt annað. Jæja nú fer bráðum að vera kominn tími til að fara út í vél. Over and out frá Kanada! Jæks var að komast að því að ég er ekki með neitt sæti!!! Stendur bara ET og þær eru að reyna redda því! Best að athuga þetta eitthvað betur! sagði Birna at 23:35 | {xoxo} |
Um mig Ekki mikið um mig að segja Er stödd í Vancouver, Kanada núna og mun eyða næsta árinu hér í að nema mannfræði, kynnast kanadamönnum og leika mér í fjöllunum hér í kring.
indlands myndirlinkur inn a myndirnar hans hauks enska bloggið mitt elín fía&sirrý ed gamalt og gott já ég þarf bara að taka í sellu svo fer þetta í gang :o) kela kúl arna vigdís linda halla elísa+snúlla svanhvít+bumba 1981 ásta maría salka halldóra brynja mar sella fia
|