föstudagur, ágúst 25, 2006

Já þá er komið að því, Birna litla flytur í borg óttans!!!! Einhvern tíma hét ég því nú að búa aldrei í Reykjavík en ég verð víst að éta það ofan í mig því planið er að vera þar næstu mánuðina. Við það að verða 25 þá fullorðnaðist ég um helming, ég skráði mig í háskóla, keypti mér fartölvu og planaði meira en mánuð fram í tíman. Við það að byrja í hásóla ætti maður náttúrlega að vera plana næstu 3 árin en ég fæ nú bara fyrir hjartað að hugsa til þess að vera á sama stað í 3 ár svo ég er strax farin að kíkja á skiptinám og sumarvinnu í útlöndum, ef það gengur eftir þá ætti þetta nú að vera allt í lagi og hver veit nema ég bara nái að fá háskólagráðu eftir 3 ár. Ætla nú samt ekkert að vera of bjartsýn, þetta er allavega byrjunin búin að skrá mig í skólann, kaupa mér penna og fá íbúð þannig það er of seint að hætta við en ég lofa engu með framhaldið, fæ örugglega mörg spennandi tækifæri til að gera hitt og þetta svo allt getur skeð!!!
En ættla nú akki að blogga mikið get gert það þegar ég byrja í skólanum :o) Vildi bara skella inn einu kveðjubloggi til Ísafjarðar og þeirra sem þar verða í vetur, nú þegar er búið að plana ferð vestur í september svo það er nú ekki svo langt þangað til við sjáumst næst.
Bæjó pæjó
Hugsið vel um fjörðinn góða og verið dugleg að skrifa krassandi comment eða sms!!!


sagði Birna at 13:00

|

{xoxo}



fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Já það er víst dáldið síðan ég kom heim frá Fljótavík, sú ferð var alveg hreint frábær þó svo mér hafi ekki fundist seinnipartur næturgöngunnar verið það frábær á meðan á því stóð en núna 2 vikum seinna er allt gleymt og það eina sem situr eftir er góður tími með frábæru fólki og ágætis uppátækjum, t.d. göngur, sauna, sjósund, holugrill, rekaviðatínsla, leikir og bjór, og alveg örugglega margt fleira sem ég gleymi að telja upp.

Helgin eftir Fljótavík var svo verslunarmannahelgin og er þetta í fyrsta skipti síðan ég man eftir mér að ég er ekki að vinna (þ.e.a.s. ef ég hef verið á landinu), ég og Elín brunuðum á stað ekki nema klukkutíma á eftir áætlun um hádegi á föstudag. Leiðin lá beinustu leið í Ásbyrgi til að sjá SigurRós spila, flestir voru efins og sögðu að við myndum aldrei ná þessu en með frábærum akstri, þrautsegju og engum pissustoppum þá lögðum við í bílastæðið 5 mínútur yfir 9. Þá tók við ágætis labb inn í botn Ásbyrgis en við erum bara helv... sáttar að hljómsveitin hafi verið byrjuð að spila, því labbið inn í botn var magnað, bergmálið svakalegt og ekki séns að átta sig á því hvar hljómsveitin væri. Náðum svo að finna Heiðu og Unni sem voru ferðafélagar okkar það sem eftir var helgar, en áður hafði Kolbeinn náð okkur og rölt með okkur inn í botn. En frábært kvöld og geggjaðir tónleikar, aumingjað þið hin sem misstuð af þessu.

En síðan þá hef ég:
Keyrt á Egilsstaði
Farið á river kayak
Farið í Mývatnsböðin
Séð Goðafoss og ímyndað mér Elínu á kayak fara fram af
Brunað heim í svarta myrkri og þoku, kysstum rollu!!!
Unnið
Orðið Evrópumeistari í mýrarbolta :o) vahú!!!!
Farið á ball með Stjórninni, svaka stuð!
Farið suður
Séð Ísland-Spánn
Fengið íbúð
Komið vestur
Unnið

Og svo er planið sem væntanlega verður búið fyrir næsta blogg:
Lokahóf OK (ofurkvenna)
Sálarball
Vakna "fersk" fyrir æfingu allt of snemma á laugardagsmorgni!!! jæks..
Horfa á strákana vinna (eða tapa miðað við gengi í síðustu leikjum!!)
Gera eitthvað helþí og reyna vera komin í form fyrir leik á sunnudag :o/
VINNA leikinn
Vinna síðustu vinnuvikuna :o) vahú alltaf gaman.

Vona ég verði nú búin að blogga smá einhvern tíma þarna á milli en hef samt ekkert allt of mikla trú á því.


sagði Birna at 15:51

|

{xoxo}






Um mig
Ekki mikið um mig að segja
Er stödd í Vancouver, Kanada núna og mun eyða næsta árinu hér í að nema mannfræði, kynnast kanadamönnum og leika mér í fjöllunum hér í kring.


myndir

mBloggið mitt

indlands myndirlinkur inn a myndirnar hans hauks


enska bloggið mitt
elín
fía&sirrý
ed
gamalt og gott já ég þarf bara að taka í sellu svo fer þetta í gang :o)
kela kúl
arna vigdís
linda
halla
elísa+snúlla
svanhvít+bumba
1981
ásta maría
salka
halldóra
brynja mar
sella
fia


ferdabloggid okkar
bókhlaðan
bb
bloggari
snilld


skoða
kvitta




júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005júní 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006desember 2006ágúst 2007september 2007október 2007nóvember 2007desember 2007janúar 2008mars 2008apríl 2008maí 2008