föstudagur, júlí 07, 2006 Já þar sem félagi minn xxx er eitthvað farin/nn að lengja eftir bloggi þá verð ég að skella einu stuttu inn. Þó svo ég hafi nú ekki verið að gera neina hluti sem vert er að segja frá, helst kanski afmælið hjá mömmu og pabba á síðustu helgi sem var hrein og tær snilld, fullt fullt af fólki, góður matur og allir í stuði í ekta skógarpartýi. Þetta var án efa eitt skemmtilegasta afmælispartý sem ég hef farið í. Svo mátti náttúrlega ekki sleppa Greifunum inn í vík svo ég og Edda náðum í Elínu og hentumst á ball í þessu líka svaka stuði, íklædd lopapeysu, gúmmískóm og stuttu pilsi með snilldar hatt sem Dóri vinur pabba lánaði mér, þarna var maður sko í rétta fílingnum en það var samt ansi heitt inn á balli í lopapeysunni í trylltum dansi!! Svo fer nú tvennum sögum af ástandi manna á ballinu, sumir voru hressir, kátir og kysstu og knúsuðu mann og annan, aðrir fúlir og leiðinlegir og stungu af heim og að lokum einhverjir sem stunduðu líkamsmeiðingar. Nú hefur vikan liðið bara nokkuð hratt og lítið gerst, aðallega hm, æfingar og vinna. Fór reyndar í smá körfubolta í gærkvöldi með Fíu, Traust og Gunnar Inga og það þarf náttúrlega ekki að spurja að því en ég rúllaði þeim upp í bæði asna og 21, eða strákarnir allavega töpuðu báðum leikjunum með Trausta sem asna. Nú liggur leiðin í Fljótavík, ættla að eyða þar helginni með Siggu, Hjalta og þeirra slekti, á mánudag ættlum ég og afi svo að labba yfir á Hesteyri, þar mun pabbi bíða okkar á Skuld og svo er það bara að þenja seglin og sigla heim. Skal vera svaka dugleg að taka myndir eins og alltaf og svo gera mitt besta í að koma sjálfri mér til að setjast á rassgatið með tölvuna fyrir framan mig og henda inn öllum myndunum mínum, held það sé komið ár síðan ég setti síðast inn myndir svo það eru sennilega um 1000 myndir frá hinum ýmsu stöðum sem eiga eftir að koma inn á næstu vikum, síðasta sumar, Indland, Austurríki, páskarnir og það sem af er þessu sumri. En jæja nú er kaffið búið, best að halda áfram að vinna. sagði Birna at 09:31 | {xoxo} |
Um mig Ekki mikið um mig að segja Er stödd í Vancouver, Kanada núna og mun eyða næsta árinu hér í að nema mannfræði, kynnast kanadamönnum og leika mér í fjöllunum hér í kring.
indlands myndirlinkur inn a myndirnar hans hauks enska bloggið mitt elín fía&sirrý ed gamalt og gott já ég þarf bara að taka í sellu svo fer þetta í gang :o) kela kúl arna vigdís linda halla elísa+snúlla svanhvít+bumba 1981 ásta maría salka halldóra brynja mar sella fia
|