föstudagur, desember 03, 2004

já já já ég veit ég er ekki búin að vera standa mig í blogginu en það er bara búið að vera nóg að gera síðustu vikuna hef ekki einusinni náð að læra nein japönsku þessa vikuna og það er nú frekar léglegt, þurfti að skrifa puntka um alla bekkina mína f gaurinn sem ættlar að vera kenna f mig meðan ég er heima og svo er það jólagjafir og vesen ég er algjörlega hugmyndasnauð og held barasta að japanir séu enn hugmyndasnauðari( ekkert smá orð) en ég í að búa til sniðugt dót til að gefa. fyrir utan það að hér í japan eru gjafir yfirleitt praktískar, td. er frábært að fá uppþvottalög eða þvottaefni, það eru búðir við suma súpermarkaði sem eru sérstakar gjafabúðir og ég nottla ættlaði að leisa málið auðveldlega og fara bara þangað og byrgja mig upp af gjöfum. en ég efast um að fólk yrði allt of ánægt að fá pakka þaðan, einn gjafakassi innihélt þrjár mismunandi tegundir af olíum, já nei ekki eins og þið eruð að hugsa "hva það er nú næs að fá góðar olíur" heldur ósköp venjulegar matarolíur ekki einu sinni ólífolía bara e-ð krapp úr súpermarkaðinum komið í næs kassa, annar kassi voru nokkrar mismunandi tegundir af niðursoðnum mat, túnfisk, sardínur og baunir eða e-ð álíka. ss ég fór tómhent út úr búðinni og hóf heljarinnar verslunarleiðangur sem er kominn á það stig að ég er búin að kaupa MÉR eina peysu, búin að sjá jakka og slatta af skóm sem MIG langar í og komin með eina hugmynd að jólagjöf. en við ættlum að fara versla gjafir í kvöld því ed á líka eftir að finna e-ð og svo erum við að fara til kusatsu á morgun, lítill bær upp í fjöllum sem er þekktur fyrir onsen og ættlum að gista á ekta japönsku hóteli með mat og öllu svo þetta verður smá kúltúr ferð bara rölt um í sloppum, tekið onsen og borðað hrísgrjón í morgunmat.
sunnudeginum verður svo eytt í að skoða okkur aðeins um og keyra heim hver veit nema við stoppum og förum í snáka senter ninja house á leiðinni heim en sjáum til.
mánudagur er síðasti dagurinn í vinnunni (jeij jeij jeij, nei nei þetta er ekkert slæm vinna en það er alltaf gaman að fá frí í vinnunni sama hversu skemmtileg vinnan er) og svo bara pakka pakka pakka því þriðjudagurinn er dagurinn sem ferðin stóra hefst!! (bara láta þetta hljóma spennandi er alls ekki spennandi ferð)
byrja á því að taka lest héðan kl 5 að morgni kem til tokyo 6.10 þá hef ég 20 mín til að koma mér á aðra lestarstöð með undergroundinu og rölta þar í dágóðan tíma til að komast í fluglestar terminalið þaðan fer lestin kl 6.30 (er frekar knappur tími en ég barasta ættla að ná því þetta eru allt fyrstu lestar dagsins svo hef ekki um neitt annað að velja) kem til narita 7.30 og þá er það að finna deskið til að pikka upp miðann og svo bara tékk inn og flug til hong kong 9.30 held ég verði um kl tíma í hong kong og þá liggur leiðin til london á að lenda í london 20.15 london time sem er þá 5.15 fimmtudagsmorgun hér í jap ss um sólahring eftir að ferðin hófst. þar sem icelandair er með flugin sín á asnalegum tíma og bara 2 á dag þá þarf ég að bíða til kl 13 london time næsta dag til að kom til ísl, ss um 17 tíma á heathrow!!! og þá er það loksins bara 3 tíma flug heim til elsku íslands og vonas að ég lendi þar heil og höldnu um 4 leitið á fimmtudag um 44 klst eftir að ferðalagið hófst. ef ég verð ekki snarbiluð eftir þetta + tímamismun þá er ég ofur hetja.
en svona er þetta og ekki þýðir að kvart finn mér alveg örugglega einhvern til að hanga með og kjafta við en það er reyndar týpískt ég að missa af fyrstu lestinni sem þýddi að ég myndi missa af næstu lest og það þýðir að ég næ ekki á völlinn í tæka tíð og missi því af fluginu!! en vona bara ekki :o)
en þá kemur aðal málið það eina sem ég ættlaði að blogga í dag því ég er að flýta mér út til að faraí eina búð og svo upp á skrifstofu að læra smá japönsku áður en ég byrja að kenna.
hver vill vera bestastibestur og taka frá eitt stykki klukkutíma um 4 leitið á fimmtudaginn og vera svo elskulegur og koma og sækja mig á keflv flugvöll svo ég þurfi ekki að taka rútuna????:o)
síðast þegar ég tók rútuna fylltist hún af hormónafullum grænlendingum sem tóku endalausan tíma í að koma sér inn svo rútan lagði of seint á stað og allir önguðu af ógeðslegri reykingarfýlu og svita, svo þegar við komum á loftleiðir skildu þeir ekki neitt og stóðu upp en vissu ekki hvort þeir voru að fara eða koma svo ég stóð först í gangveginum og komst ekki út, komst svo loksins að dyrunum og var að stíga niður tröppurnar þegar allir sem voru komnir út uppgötuðu að þeir áttu ekki að fara út og tróðust þá inn aftur þó svo ég stæði þarna í miðjum tröppunum á leiðinni út. þá var birnu nú nóg boðið setti upp olnbogana og ruddist út svo þeir hálfpartinn duttu út aftur og stóðu svo bara og horfðu á mig og skildu hvorki upp né niður!!! birnan orðin frekar pirruð þegar þarna var komið sögu!!!
en allavega væri mjög fegin að sleppa við rútuna svo ef einhver hefur tíma plís plís plís ég skal kaupa fríhafnarnammi f ykkur :o) (hehehe það virkar alltaf að kaupa fólk)
jæja meira en nóg í bili veit ekki hvernær þið heyrið frá mér næst kanski það verði bara orð úr mínum eigins munni standandi face to face.


sagði Birna at 03:38

|

{xoxo}






Um mig
Ekki mikið um mig að segja
Er stödd í Vancouver, Kanada núna og mun eyða næsta árinu hér í að nema mannfræði, kynnast kanadamönnum og leika mér í fjöllunum hér í kring.


myndir

mBloggið mitt

indlands myndirlinkur inn a myndirnar hans hauks


enska bloggið mitt
elín
fía&sirrý
ed
gamalt og gott já ég þarf bara að taka í sellu svo fer þetta í gang :o)
kela kúl
arna vigdís
linda
halla
elísa+snúlla
svanhvít+bumba
1981
ásta maría
salka
halldóra
brynja mar
sella
fia


ferdabloggid okkar
bókhlaðan
bb
bloggari
snilld


skoða
kvitta




júní 2004júlí 2004ágúst 2004september 2004október 2004nóvember 2004desember 2004janúar 2005febrúar 2005mars 2005apríl 2005júní 2005ágúst 2005september 2005október 2005nóvember 2005desember 2005janúar 2006maí 2006júní 2006júlí 2006ágúst 2006september 2006október 2006desember 2006ágúst 2007september 2007október 2007nóvember 2007desember 2007janúar 2008mars 2008apríl 2008maí 2008