fimmtudagur, mars 20, 2008 Já ég veit komnir 2 mánuðir frá bloggi, held barasta að það sé slakasti árangurinn til þessa á ca 4 eða 5 ára sögu þessa bloggs! Váá hvað það er langt síðan ég fór að blogga!! Verð að skoða þetta betur. En já þar sem ég er gjörsamlega heiladauð og ansi bitur akkurat núna út í allt og alla, eða meira kannski bara að drepast úr öfundsýki!! Mig langar bara að vera heima!!!! Skil ekki hvað ég er alltaf að þvælast út um allt í stað þess að vera heima hjá mér og njóta elskulega Ísafjarðar. Ok það er reyndar bara skíðavikan, aldrei fór ég suður, allur snjórinn, landsmótið, páskafrí!!, páskaegg (stendur til bóta, bíð spennt eftir sendingu frá ma og pa, takk takk!! þau eru best), allt fólkið, já og bara vor á Íslandi sem ég sakna. Svo er líka ansi fúlt að vera hér í útlöndunum akkurat núna og reyna lifa á íslenskum námslánum þegar krónan er í e-u þvílíku tremmakasti. Áður voru það um 1100 dollarar sem ég fékk til að reyna að lifa af mánuðinn, gekk reyndar ansi oft erfiðlega enda nánast ekki fræðilegur að lifa á þessum blessuðu námslánum einum saman! En eins og staðan er í dag þá eru þetta skitnir 930 dollarar, 170 dollurum minna, sem eru heilar 13.090 krónur!!! Sem fara bara út í veður og vind, ekki alveg það sem bankareikningurinn þurfti, en ég vona bara að Glitnir haldi áfram að vera góður við mig. Og til að toppa þetta allt er ég að bögglast við að skrifa e-a bévítans ritgerð sem mér gengur ekkert að koma mér inn í og mexíkóski meðleigjandinn minn er með vini sína í heimsókn í næsta herbergi og þau tala svo hátt að mig langar að berja í vegginn. Ok reyndar fara vinir hennar bara í taugarnar á okkur hinum, en Karen(meðleigjandinn) er fín, svo þau eru kannski ekkert svo hávær, pirra mig bara yfir höfuð :o) Vó ég ætlaði ss bara að segja ykkur að þar sem ég væri heiladauð og frekar pirruð ætlaði ég ekki að blogga mikið bara henda inn myndum, og fara að reyna vera duglegri við það, ss henda inn myndum þó svo ég nenni ekki að blogga. En það bara opnuðust allar flóðgáttir og ég fékk útrás :o) geggjað, er ekki frá því að ég sé aðeins hamingjusamari og hlakki bara til að fara til Vancouver Island með Lindsey(öðrum meðleigjanda) og eyða páskunum með fjölskyldu hennar og vinum. Þar á meðal finnskri ömmu hennar sem er eineggja tvíburi og eru þær víst þvílíkir snillingar, hlakka mikið til að hitta kellur. Þar sem ég verð ekki í netsambandi, eða allavega minna en hér, þá kannski bara tekst mér að gleyma öllu sem er í gangi heima, peningamálum og öllum biturleika. Og hver veit kannski það verði "töfrabragð" (ohhh man enganvegin orðið sem ég ætlaði að nota, ss eins og jesú og þegar e-ð svona óvænt en mjög ósennilegt verður að veruleika. Bahhh ég sagði ykkur að ég væri heiladauð!!) og krónan fari í betra skap og ég "eigi", eða kannski betra að segja hafi til umráða, alveg hellings pening þegar ég kem heim á mánudaginn :o) Alltaf gott að vera bjartsýn. Ég sem er þvílíkt búin að bíða eftir enduðum mars þegar allt fer á útsölur, er meira að segja búin að finna geggjaða úlpu og skíði á skít og kanil, eða var allavega á skít og kanil! Geggjuð bleik Burton dúnúlpa sem á að kosta 500 dollara en er á útsölu á 100, sem ég nærri keypti á sunnudag en ákvað af e-m ástæðum að bíða, sé mikið eftir því núna þar sem hún hefði kostað mig 6600 á sunnudaginn, en nú mundi hún kosta mig 7700. Ohh verið að taka mann í garnirnar, en nú er nóg komið af rausi um peninga, ég þoli ekki fólk sem röflar um peninga :o) hehe! Hér koma myndirnar sem ég ætlaði að henda inn, algjörlega random myndir, héðan og þaðan. ![]() ![]() ![]() ![]() Sólin að setjast bak við "the peninsula" sem UBC campus er á. Já ég ss bý þarna hinumegin :o) Myndin tekin frá Stanley Park sem er geggjaður garður með risa trjám nánast í miðborg Vancouver. Tekið í September í fyrra, fórum að skoða Lyn valley og hengibrúna þar, það að krossa hana er eitt það heimskulegasta sem ég hef gert!! Fáránlega há, full af heimsku fólki sem stoppar á miðri brú og hún vaggar til og frá. Til allrar hamingju villtumst við, lentum á þessum geggjaða stað og fórum til baka yfir aðra háa brú sem var þó allavega almennilega föst í báða enda, breið og stöðug. Ekki bara bundin upp með e-m köðlum! Já nú segi ég yfir og út, lofa að láta ekki líða langt í næsta blogg, eða allavega í næstu myndir. Get ekki farið að hafa þetta neikvæða, bitra blogg uppi of lengi. Sorrý að hafa helt svona svaðalega úr skálum mínum yfir ykkur en er strax komin í pínu betra skap :o) Nú er bara að elda e-ð gott í gogginn, (gott=pasta, pastasósa úr krukku og sveppir. Er á þvílíka sveppaæðinu núna!) gera eina sudoku og vinda sér svo aftur í ritgerðarskrifin. Er viss um ég nái þessum 10 bls sem ég á eftir fyrir 8 í fyrramálið! Gangið hægt um gleðinnar dyr, ekki skemmta ykkur of mikið á dalnum, afs og Sssól balli, eða ok skemmtið ykkur vel, verið bara ekkert að segja mér frá því!! Borðið yfir ykkur af páskaeggjum :o) Gleðilega páska allir saman! sagði Birna at 02:23 | {xoxo} |
Um mig Ekki mikið um mig að segja Er stödd í Vancouver, Kanada núna og mun eyða næsta árinu hér í að nema mannfræði, kynnast kanadamönnum og leika mér í fjöllunum hér í kring.
indlands myndirlinkur inn a myndirnar hans hauks enska bloggið mitt elín fía&sirrý ed gamalt og gott já ég þarf bara að taka í sellu svo fer þetta í gang :o) kela kúl arna vigdís linda halla elísa+snúlla svanhvít+bumba 1981 ásta maría salka halldóra brynja mar sella fia
|